Fara beint í efnið

Hvað er hlutdeildarlán?

Hlutdeildarlán er leið til að komast inn á fasteignamarkaðinn fyrir fólk sem á ekki, eða á erfitt með að safna fyrir, fullri útborgun en getur greitt mánaðarlegar afborganir.

Hlutdeildarlán eru ólík öðrum lánum þar sem ekki eru mánaðarlegar greiðslur né vextir heldur greiðir þú lánið til baka eftir 10-25 ár eða þegar þú selur íbúðina.

Til að eiga rétt á hlutdeildarláni þarftu:

Reiknivél hlutdeildarlána

Minna eigið fé

  • Þú þarft aðeins að eiga fyrir 5% útborgun.

  • Þú færð hlutdeildarlán fyrir allt að 20% af kaupverði.

  • Þú tekur íbúðarlán fyrir rest.

hlutdeildarlan-hlutfall

Útborgunin má vera hærri en ef hún fer yfir 6,5% lækkar hlutdeildarlánið sem því nemur.

Dæmi:

  • Þú átt 10% af kaupverði.

  • Hlutdeildarlánið getur verið allt að 16,5%.

Hvernig er hlutdeildarlán endurgreitt?

Engir vextir eða afborganir eru af hlutdeildarláni. Í staðinn fylgir upphæð lánsins verðþróun fasteignarinnar og þú þarft ekki að endurgreiða það fyrr en þú selur eða lánstíma lýkur. Hlutdeildarlán er veitt til 10 ára en hægt er að framlengja lánstímann um 5 ár í senn, til 25 ára alls í samráði við ráðgjafa HMS.

Endurgreiðsla á hlutdeildarláni

Greiða inn á hlutdeildarlán

Ef þú vilt greiða inn á hlutdeildarlán þarf greiðslan að vera að minnsta kosti 5% af verði eignarinnar. Þá færðu verðmat hjá fasteignasala og hefur samband við HMS með tölvupósti á hlutdeildarlan@hms.is eða í síma 440 6400 og biður um að fá að greiða inn á lánið. Lánið er þá endurreiknað og þú færð greiðslukröfu um upphæðina.

Endurfjármögnun á grunnláni

Þú getur hækkað upphæð grunnlánsins með endurfjármögnun til þess að greiða inn á hlutdeildarlánið.